Fimmtudaginn 13. febrúar s.l. blés SSNV til veislu í Félagsheimilinu Hvammstanga. Tilefnið var veiting styrkja úr Uppbyggingarsjóði Norðurlands vestra. Alls voru 75 styrkir veittir til 60 aðila og námu styrkirnir alls 65.000.000 kr.

Menningarfélag Húnaþings vestra hlaut að þessu sinni styrk fyrir Söngvarakeppni Húnaþings vestra 2020 og rekstrarstyrk fyrir árið. Þess má geta að þetta er í annað sinn sem félagið fær rekstrarstyrk, sem er einstaklega ánægjulegt enda hjálpar það til við geta bætt aðbúnað og annað sem styrkir rekstrarlegan grundvöll félagsins.

Menningarfélagið var ekki eini styrkhafinn hér í Húnaþingi vestra enda voru alls 17 aðilar sem fengu úthlutað styrkjum vegna 22ja verkefna.

Olga Lind Geirsdóttir Lopalind spunaverksmiðja 3.896.500 kr.
Selasetur Íslands Stofn- og rekstrarstyrkur 2020 2.200.000 kr.
Ferðamálasamtök Norðurlands vestra Markaðssókn Ferðamálasamtaka Nl. vestra 1.815.000 kr.
Kristólína ehf. Spæjaraskólinn – vöruþróun og kynning 1.300.000 kr.
Selasetur Íslands Markaðssókn Seal Travel 1.237.500 kr.
Handbendi Brúðuleikhús Hvammstangi Internation Puppetry Festival    900.000 kr.
Handbendi Brúðuleikhús Stofn- og rekstrarstyrkur    900.000 kr.
Unglist í Húnaþingi Eldur í Húnaþingi 2020    700.000 kr.
Selasetur Íslands Modernization of the Icelandic Seal Museum    600.000 kr.
Húnaþing vestra Fjölmenningarsamfélagið í Húnaþingi vestra    550.000 kr.
Ingibjörg Jónsdóttir Popp- og rokkkór í Húnaþingi vestra    400.000 kr.
Karlakórinn Lóuþrælar Vor- og jólatónleikar 2020    400.000 kr.
Leikflokkur Húnaþings vestra Páskasýning Leikflokks Húnaþings vestra    400.000 kr.
Ungmennasamband V-Hún. Húni 41. árgangur    400.000 kr.
Verslunarminjasafnið Hvammstanga Stofn- og rekstrarstyrkur 2020    400.000 kr.
Félag eldri borgara Húnaþingi vestra Vor – og jólatónleikar 2020    300.000 kr.
Menningarfélag Húnaþings vestra Söngvarakeppni Húnaþings vestra    300.000 kr.
Kristín Árnadóttir Hátíðni 2020    250.000 kr.
Skúli Einarsson Jólatónleikar Jólahúna 2020    250.000 kr.
Karlakórinn Lóuþrælar Guðmundur í Neðra – upptökur    200.000 kr.
Menningarfélag Húnaþings vestra Stofn- og rekstrarstyrkur 2020    200.000 kr.
Þorbjörg Inga Ásbjarnardóttir Útgáfa ljóðabókar    150.000 kr.

 

Heildarlista yfir styrkhafa er hægt að nálgast á vef SSNV, www.ssnv.is.

Á meðfylgjandi mynd má sjá Valdimar Gunnlaugsson, varaformann Menningarfélags Húnaþings vestra, eftir að hafa veitt styrkjunum viðtöku.