Í kvöld, föstudagskvöldið 14. febrúar, kl. 20:00 sýnir Handbendi brúðuleikhús verkið Sæhjarta, sem er einleikið brúðuverk fyrir fullorðna, í Tjarnarbíói í Reykjavík. Um er að ræða frumsýningu en verkið var (for)-frumsýnt á Hvammstanga í nóvember s.l.

Sagan er sögð með heillandi blöndu brúðuleiks og hefðbundins leikhúss. „Sæhjarta endurskapar og endurvekur gömlu sagnirnar um urturnar sem komu á land og fóru úr selshamnum til að búa og elska meðal manna.

Greta Clough skrifaði handrit og sér um leik, leikstjórn er í höndum Sigurðar Líndal Þórissonar, tónlist og hljóðmynd í höndum Júlíusar Aðalsteins Róbertssonar og Egill Ingibergsson sér um leikmynd og lýsingu.
Sýningin er á ensku.
Verkið verður einnig sýnt 19. febrúar á ensku og á íslensku þann 27. febrúar n.k.

Miðasala fer fram á tix.is og miðaverð er 4.400 kr.
Athugið, verkið er ekki ætlað börnum undir 16 ára aldri þar sem það inniheldur atriði og lýsingar á kynlífi, ofbeldi og nekt.