Það var einstaklega góðmennt á gömlu-dansa-ballinu sem menningarfélagið stóð fyrir s.l. föstudagskvöld í félagsheimilinu Ásbyrgi á Laugarbakka. Þetta var í annað sinn sem félagið sér um slíkan dansleik og trúum við að það sé flott tækifæri fyrir framtakssama að standa fyrir viðlíka viðburði með reglubundnum hætti.

Hljóðfæraleikararnir voru fanta góðir á sviðinu, en þeir sem fram komu voru Marinó Björnsson, Skúli Einarsson, Sigurður Ingvi Björnsson, Sveinn Kjartansson, Þorvaldur Pálsson, Björn Pétursson, Benedikt Jóhannsson og Ragnar Leví. Gestirnir stóðu sig sérlega vel á dansgólfinu og nutu þess að skrafa saman þegar hlé voru gerð á tónlistinni. Stjórn menningarfélagsins stóð vaktina í lúgunni og bauð upp á kaffi og heimalagaðar pönnukökur.

Við tókum nokkrar myndir á símann. Þið vitið samt hvernig það er með dansara í sveiflu. Það er bara ekki hægt!