Hljómahöll og Rokksafn Íslands eru meðal þeirra fjölmörgu sem hafa ákveðið að vera með ýmsa tónlistartengda viðburði í gegnum streymi á netinu þessa dagana. Á Facebook-síðu Hljómahallar verður tónleikadagskrá í beinni útsendingu frá 26. mars til 16. apríl.

Ásgeir ríður á vaðið og verður með tónleika í kvöld, 26. mars, kl. 20:00.
Þannig gefst fólki tækifæri til að hlýða á Ásgeir, sem gaf nýverið út plötuna Sátt.
Hlekkur á viðburðinn er hér.

Aðrir tónleikar eru þessir:
Moses Hightower – 2. apríl kl. 20:00
GDRN – 7. apríl kl. 20:00
Hjálmar – 16. apríl 20:00

Heimild: mbl.is