Er verið að leita að einhverju að gera í þessu laaaanga páskafríi?
Listsköpun um fjarfundabúnað! Opið fyrir nemendur á mið- og unglingastigi grunnskóla, ásamt nemendum á framhaldsskólastigi.

Langar þig að skrifa handrit að útvarpsleikriti og láta taka það upp af fagmönnum og hlusta svo á afraksturinn í útvarpinu?
Í öllu þessu leiðindarástandi datt þeim hjá Stúdíó Handbendi í hug að bjóða upp á nákvæmlega þetta og fengu Menningarfélag Húnaþings vestra og FM Trölla til liðs við sig.

Námskeið í útvarpsleikritun kennir leikstjórinn Sigurður Líndal, í gegnum fjarfundabúnað 29. mars til 2. apríl. Upptökur fara fram í Stúdíó Bakka 3.-5. apríl. (Bara einn í upptökuklefanum í einu, þrifið á milli – Þetta er sko 100% sóttvarið verkefni!).
Útvarpað á FM Trölla.
Stúdíó Handbendi sér um að finna leikraddir og svo langar kannski sumum höfundanna að leika sjálfir líka.

Þátttaka er ókeypis, en framboðið er takmarkað.
Skráning er nauðsynleg hér: http://www.eventbrite.com.

Það verður mikið að gera hjá þeim sem taka þátt, en vonandi brýtur þetta upp frábreytileikann.